Áður hefur Örnefnanefnd hafnað ábúendum um nafnið Stormur á lögbýli okkar sem nú er nefnt Hvammur 2 skv. einhliða þinglýsingu nefndarinnar. Aðalröksemdarfærslur nefndarinnar voru þær að Stormur væri veðurfyrirbrigði sem ekki væri stöðugt á jörð okkar.Samkvæmt skilningi okkar ábúenda eru fjölmörg bæjarnöfn á Íslandi sem innihalda orð sem eru lýsandi fyrir veður. Nærtækasta fordæmi sem hægt er að nefna er jörðin Vindbelgur í Mývatnssveit, teljum við að þar geti tæpast verið „vindbelgur“ allt árið um kring, og samræmist þannig ströngum skilyrðum örnefnanefndar. Svo er hægt að nefna að vart er ávallt heiðskýrt í Sólheimum í Grímsnesi, og svo kunn Lagarfljótið vera ansi lygnt við Straum í Hróarstungi – en „straumur“ er einmitt bæjarnafn af sama toga úr íslensku máli og „stormur“, þ.e. ósamsett nafnorð.Sjálfsagt má týna til mun fleiri dæmi um nafngiftir af sama meiði, en látum við það ógert nú, enda af of mörgu að taka.Um legu jarðar okkar má nefna að jörðin er opin fyrir vindum af Stóra-Sandfelli í Skriðdal sem og af Hallormsstaðahálsi. Kunnugir í sveitinni hafa viljað meina að stöðugur vindstrengur sé m.a. á jörð okkar á ákveðnum árstíðum. Einnig er jörðin opin fyrir norðan- og norðaustanátt á vetrum. Þannig viljum við meina að nafngiftin Stormur geti einmitt verið réttnefni, því oft er stormur á svæðinu og getur eflaust talist með meiri vindsvæðum landsins.Einnig má benda á að höfnun á slíkri nafngift skerðir viðskiptafrelsi okkar á þann hátt að við getum ekki markaðssett hrossarækt okkar frá Stormi eins og við hefðum helst viljað frá upphafi búskapar. Þar sem bændasamtökin heimila ekki að hross séu kennd við annað en nafn lögbýli ræktanda.Þar eð okkur virðist nafngiftin „Stormur“ ekki vera sem skrattinn úr sauðalæknum biðjum við Örnefnanefnd um að staðfesta beiðni okkar um nafnabreytingu á Hvammi 2 í Storm.
mánudagur, 24. júní 2013
Smáhjálp v/Örnefnanefndar
Nú langar mig að spyrja ykkur ráða. Er búinn að rita eftirfarandi bréf. Bið ykkur að lesa það yfir og benda mér á ef ég er að gleyma mikilvægum rökum, eða ef önnur sjónarhorn gætu hjálpað. Finnst eins og ef ég sendi gott bréf til Örnefnanefndar, þá gæti nefndin miskunnað sig yfir mig. Stefni á að setja á þetta frímerki í vikunni.
sunnudagur, 23. júní 2013
Sátt um veiðiskatta
Nánast án fyrirvara er hægt að segja að engin sátt ríkir um
veiðigjöld. Mörgum þykir sjálfsagt mál að útgerðarmenn greiði afnotagjald af
auðlindinni.
Þar sem Íslendingar búa við miklar sveiflur á gengi
krónunnar, vaxtastigi og afurðaverði á fiskmörkuðum þá hljóta veiðigjöld að
þurfa að vera sveigjanleg upphæð. Það hljóta flestir að vera sammála um.
Aðrar atvinnugreinar búa við fastar stærðir. Þess vegna ætti
auðlindageirinn að búa við slíkt hið sama.
Lang farsælast væri að setja ákveðin veiðiskatt í prósentum
á veiddan afla. Veiðiskattsprósentuna vita þá allir fyrirfram til lengri tíma.
Allar hugmyndir um að reikna út fast gjald á veitt tonn, eða að byggja á
bókhaldstölum útgerða standast aldrei til lengri tíma í íslensku
efnahagsumhverfi. Jafnvel væri hægt að byggja á sitthvorri hlutfallstölunni
eftir tegundum. Við þekkjum líka að bókhaldstölur er hægt að sveigja til eftir
hentisemi hverju sinni.
Ákvörðun um stærð veiðiskatta ætti að auki að heyra beint
undir fjármálaráðuneytið, sem á að sjálfsögðu að ákvarða um alla skatta, en
ekki undanskilja ákvarðanir um einstakar atvinnugreinar til annarra ráðuneyta.
Almenn sátt hlýtur að ríkja í samfélaginu um að náttúruauðlindir
ber að skattleggja með einum eða öðrum hætti. Því hljóta stjórnarflokkarnir að
vilja auka samstöðu um „veiðigjöld“, og tryggja að samstaðan nái út fyrir
kjörtímabilið.
föstudagur, 21. júní 2013
Siðanefnd mannanafna
Mannanafnanefnd heitir eitthvert nafntogaðasta fyrirbæri
samfélagsins. Þar fer fram lífsnauðsynleg vinna við að rótargreina eðli mannanafna
og hvort er hægt að heita þeim eða ekki.
Það er mín bjargfasta trú að íslenskt þjóðfélag stefni ekki
til ragnaraka ef ákveðið verður að leggja nefndina niður. Þjóðskrá gæti fengið
að hlutverk að tilkynna „nafnasiðanefnd“ um afar einkennileg og mannskemmandi
nöfn sem gæti haft áhrif á líf barna til langframa.
Nöfn eins og „Svínka“ og „Snati“
kæmi þá fyrir slíka nefnd. Óþarfi er að anda ofan í hálsmálið á foreldrum, sem eru
nánast án undantekninga vel hæfir til að nefna börn sín. Verði nýstárleg nöfn
fyrir valinu hlýtur það að verða þróun á menningu okkar og sögu.
þriðjudagur, 4. júní 2013
Næturbleik uppgötvun
Þegar ég sit að kveldi, og horfi næturbleikan himininn, þá
veit ég að nánast þriðja hvert handtak sem ég hef unnið um ævina hefur verið
gagnslaust og brunnið upp á verðtryggingarbáli.
Þegar ég gægist út um veðsett glerið í fallegri
sumarsólinni, þá veit ég að ég er af sjálfhverfu kynslóðinni sem erft hefur hið
fullkomna kerfi til að lifa af í nútímaheimi.
Um leið og tek upp kíkirinn sem ég fékk í fermingargjöf og
stari í augu ráfandi hreindýrstarfa verður mér ljóst að ég ætti ekki að gefa
mér tíma til að njóta náttúrunnar.
Á sama tíma rjúpukarrinn rífur næturkyrrðina og fuglasönginn
með undarlegum kokhljóðum sínum, þá opnast fyrir mér leyndardómur lífsins.
Verðtryggingin er kraftaverk! Þakka þér fyrir Sighvatur
Björgvinsson – og allir hinir, sem hafa komið þessu frábæra kerfi á laggirnar
sem ég er svo vanþakklátur fyrir. Guð megi hjálpa mér til þess að vinna fleiri
tíma í mánuði, svo hægt verði útbýta laununum í formi skatta til allra þeirra
sem vilja kalla mig sjálfhverfan.
mánudagur, 27. maí 2013
Að vona
Nú veit ég ekkert um hvers vegna í ósköpunum ég er að vona að núverandi ríkisstjórn takist vel upp við að endurreisa íslenskt íbúðalánakerfi með tilheyrandi leiðréttingum. Ég bara skil ekkert í því hvers vegna ég vona að það eigi eftir að ganga vel við þessar aðgerðir.
Það er eins og ég vaði í villu míns vegar, ég hlýt að vera að vona eitthvað rangt. Það eru svo margir sem virðast vona að þetta eigi eftir að ganga illa, einhvern eins og að ákveðið fólk voni að silfurskeiðardrengjunum verði á í messunni og það komi í ljós að þeir voru í ruglinu allan tímann. Að þeir hafi bara verið í ruglinu eftir allt saman.
Ég verð bara að viðurkenna að ég vona að þessir menn og konur þarna í ríkisstjórnarflokkunum hafi sem mest rétt fyrir sér, því þá hlýtur eitthvað gott að gerast. Ef ég vonaði að þetta fólk hefði rangt fyrir sér, þá væri ég að vona að eitthvað slæmt gerist.
Annars hlýt ég að vera að vona eitthvað vitlaust, því auðvitað væri langbest að ekkert væri hægt að gera í stöðunni til að laga stöðu heimilisins.
Ég verð bara að vona, að hvað sem ég vona, þá voni ég fallega.
Það er eins og ég vaði í villu míns vegar, ég hlýt að vera að vona eitthvað rangt. Það eru svo margir sem virðast vona að þetta eigi eftir að ganga illa, einhvern eins og að ákveðið fólk voni að silfurskeiðardrengjunum verði á í messunni og það komi í ljós að þeir voru í ruglinu allan tímann. Að þeir hafi bara verið í ruglinu eftir allt saman.
Ég verð bara að viðurkenna að ég vona að þessir menn og konur þarna í ríkisstjórnarflokkunum hafi sem mest rétt fyrir sér, því þá hlýtur eitthvað gott að gerast. Ef ég vonaði að þetta fólk hefði rangt fyrir sér, þá væri ég að vona að eitthvað slæmt gerist.
Annars hlýt ég að vera að vona eitthvað vitlaust, því auðvitað væri langbest að ekkert væri hægt að gera í stöðunni til að laga stöðu heimilisins.
Ég verð bara að vona, að hvað sem ég vona, þá voni ég fallega.
miðvikudagur, 22. maí 2013
Penge i lommen
Seinni part dags fékk ég í lófann nokkra Færeyska seðla. Það er ekki í frásögur færandi, nema vegna þess að ég fór að spá í hvert væri gengi Færeysku krónunnar. Komst að því að 1.000 krónur Færeyskar eru ca. 21.000 krónur.
Fór svo að velta því fyrir mér fyrst ef Færeyingar hafa 21.000 króna seðil, gætum við Íslendingar þá ekki látið prenta 10.000 króna seðilinn?
Ekki það að seðlaburður sé að fara með bakið á mér.
Fór svo að velta því fyrir mér fyrst ef Færeyingar hafa 21.000 króna seðil, gætum við Íslendingar þá ekki látið prenta 10.000 króna seðilinn?
Ekki það að seðlaburður sé að fara með bakið á mér.
sunnudagur, 19. maí 2013
Flokkur útvegsmanna
Það verður að segjast eins og er að ein stærstu mistök fráfarandi ríkisstjórnar voru að koma ekki á nýju skipulagi við innheimtu
afgjalds fyrir fiskveiðiauðlindina, og það strax í byrjun. Augljóst er að það
samstöðuleysi um fyrirkomulag sem fyrrverandi ríkisstjórn glímdi við kom í veg fyrir að hægt
var að gera breytingar sem halda lengur en í nokkra daga frá því ný ríkisstjórn
tekur við.
Hefði verið gerð grundvallar kerfisbreyting á skipulagi
fiskveiða sem nú væri komin á þriggja ára reynsla er án nokkurs efa hægt að
segja að þá hefði EKKI verið hægt að labba inn í ráðuneytið og fella niður
afgjald af aflaheimildum með einu pennastriki.
Það var meðal annars með von um breytingar á fiskveiðilöggjöf
og afgjaldi sem íbúar landsins studdu vinstri flokkana til stjórnar landsins.
Það var ein af stóru breytunum.
Nú vildi ég svo innilega að vinstri stjórnin hefði staðið
sig svo miklu betur, því þá hefði Flokkur útvegsmanna* ekki átt svo hæg
heimatök núna.
*Þar er auðvitað átt við Sjálfstæðisflokkinn sem er ein af
verðmætari eignum LÍÚ, og tengslin augljósari en tengsl Repúblikanaflokksins
við Samtök byssuframleiðenda í USA.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
