Ákveðið hefur verið að framvegis skuli vegurinn um Möðrudalsöræfi og Vopnafjarðaröræfi einungis ruddur tvisvar í viku.
Nú hefur innanríkisráðherra ef til vill hlaupið á sig. Þjóðvegur 1 í norðausturkjördæmi skal vera lokaður bílaumferð svo dögum skiptir. Skal vera lokuð mjólkurflutningum. Skal vera lokuð nauðþurftum. Skal vera lokuð ferðamönnum. Skal vera lokuð austfirskum aflandsbúum. Meira að segja er margvísleg framleiðsla aflandsbúa flutt um þennan veg, en ostur og fiskur eru kannski ekki í tísku.
Mikið held ég að þjóð eigi bágt sem getur ekki jafnað útgjöld stærstu snjómokstursáranna milli fjárlagaára. Nú vona ég svo sannarlega að fundin verði á þessu mannsæmandi lausn svo við aflandsbúar komumst leiðar okkar.
Vegagerðinni hafa meira að segja verið settar ákveðnar reglur, sem virðist vera tilvalið að brjóta, skv. þeim skal þessi leið mokuð sex daga í viku. Ætlast til þess að þingmenn kjördæmisins verði búnir að kippa þessum málum í liðinn áður en dagur rennur.
Eftirfarandi athugasemd frá upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar er rétt að birta hér:
Sæll Einar
þessi ráðstöfun er ekki gerð í sparnaðarskyni heldur vegna aðstæðna, sem við vonum að vari ekki lengi enda verður horfið hefðbundins moksturs um leið og aðstæður breytast. Sjá á vef Vegagerðarinnar, fréttir:
http://www.vegagerdin.is/upplysingar-og-utgafa/frettir/nr/6090
http://www.vegagerdin.is/upplysingar-og-utgafa/frettir/nr/6093
bestu kveðjur austur
Pétur Vegagerðinni
fimmtudagur, 27. febrúar 2014
sunnudagur, 23. febrúar 2014
Flokksfélagadraslið
Vinstri stjórnin sem hafði stærsta umboð til efnahagslegra
og stjórnskipunarlegra breytinga sem kjósendur hafa veitt stendur eftir í
minningunni sem ríkisstjórn vonlausra og misnotaðra tækifæra þar sem
innanflokksátök og misklíð ríkisstjórnarflokkana í stærstu málunum leiddi til
pattstöðu og kyrrstöðu-málamyndana.
Afrek vinstri stjórnarinnar leiddu til fyrstu hreinu hægri
stjórnarinnar á Íslandi. Framsóknarflokkurinn hefur fært sig svo langt til
hægri í málflutningi að hægt er að leiða rökum að því að Sjálfstæðisflokkurinn
sé nær miðju á hægri/vinstri ás íslenskra stjórnmála en Framsóknarflokkurinn.
Grasrótarmenn sem gerðu Sigmund að framtíðarleiðtoga Framsóknarflokksins hljóta
að fjarlægjast hann smám saman – enda hefur hann sýnt alla aðra
Framsóknarmennsku en Framsóknarmenn eru vanir allt frá því hann sleit
bernskuskónum sem formaður.
Núverandi ríkisstjórn hefur svikið alla flokksfélaga sína
sem höfðu eytt mánuðum í málamiðlanir vegna Evrópusambandsins, það er eflaust
gagnlausasta starf sem flokksgrasrótir Sjálfsstæðisflokks og Framsóknar hafa
unnið. Það er furðuleg staðreynd að grasrótarhópar
ríkisstjórnarflokkana skuli ekki mótmæla kröftuglega þeirri framgöngu sem orðið
hefur í Evrópumálunum. Framgöngu sem virðist leið ósátta og harðari stjórnmála
næstu árin. Framgöngu sem lýsir algjöru virðingarleysi við sannfæringar- og
skoðanaheimi annarra.
Það hlýtur að vera jafn mikil móðgun við Evrópuandstæðinga
innan ríkisstjórnarflokkana og stuðningsmenn við Evrópusambandið, að
málamiðlanir almennra flokksmanna skuli að engu hafðar. Vill það einhver að
starf stjórnmálaflokka, þ.e. landsfundir, flokksmálafundir, stefnufundir og
kosningabarátta sé marklaus hugsjónavinna venjulegs fólks og eins og hvert annað
drasl sem er hægt að henda í ruslið?
fimmtudagur, 20. febrúar 2014
Tökum Flugfélagið eignarnámi
Nú er það svo að oft á tíðum er ódýrara að fljúga til London og Kaupmannahafnar frá Keflavík heldur en til Egilsstaða frá Reykjavík.
Það hlýtur að teljast afar óeðlilegt svo ekki sé meira sagt. Flugfélag Íslands nýtir sér einokun á innanlandsflugi til hins ýtrasta og smjattar á nauð-viðskiptavinum sínum eins og harðfiski og étur roðið með. Dregur jafnvel úr áhuga erlendra ferðamanna á að notfæra sér innanlandsflug, og þess vegna má færa rök fyrir því að verslun og þjónusta við ferðamenn dreifist skakkt um landið.
Einokun Flugfélags Íslands er óvéfengjanleg staðreynd. Ofurverðlagningin er það einnig. Skattlagning er há, en útskýrir aðeins hluta af okurverðinu sem er í boði.
Þess vegna gæti það verið algjörlega hagur þjóðarinnar að Flugfélag Íslands verði tekið eignarnámi og rekið af ríkinu næstu árin í það minnsta. Ofurgjaldtöku Flugfélags Íslands verður að stöðva með öllum tiltækum ráðum. Allt frjálslynt hjal um frjálsa samkeppni á alls ekki við um íslenskt innanlandsflug.
Seinni kosturinn væri að ríkið stofnaði nýtt innanlandsflugfélag til höfuðs Flugfélagi Íslands, en eignarnám væri líklegast skárri kostur.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)