Ég er utan af landi og á þar fjölskyldu og vini. Ég vill að
þetta fólk geti átt þess kost að lenda í farþegavél í Reykjavík og sótt þar
þjónustu í nágrenninu, þ.á.m. neyðarþjónustu. Þess vegna hef ég skrifað undir
undirskriftalista á lending.is
Ég veit að Gísli Marteinn getur þá ekki búið í Vatnsmýrinni
og hjólað niður í Ráðhús. Það er talsverð fórn.
Ég veit að miðborgin gæti verið öflugri með íbúabyggð í
Vatnsmýrinni, og að landsbyggðin væri öflugri flugvöll í Vatnsmýrinni.
Ég veit að mér kemur ekkert við hvað gert er í Reykjavík
enda bý ég ekki í sveitarfélaginu þar sem mestu af opinberu skattfé er
ráðstafað ár hvert.
Ég veit að ég hef valið að búa úti á landi og á ekki rétt á
því að sækja þjónustu í höfuðborginni nema með meiri og meiri tilkostnaði og
fyrirhöfn.
Ég veit að samkvæmt lögfræðilegu áliti þá bæri
Reykjavíkurborg að greiða fyrir framkvæmd við nýjan flugvöll skv. bótarétti
skipulagslaga – en ég veit ekkert hvað það myndi kosta marga tugi milljarða
.....samt ákvað ég nú að skrifa undir þennan blessaða lista.
1 ummæli:
Lentu bara í Keflavík. Það geri ég.
Skrifa ummæli