Þeir sem vilja leggja af innanlandsflug til Reykjavíkur þurfa að koma með lausnir á neyðarsjúkraþjónustu við landsbyggðina. Þær eru
eflaust fjölmargar. Til að mynda mætti koma upp alvöru spítala nærri
Keflavíkurflugvelli, og nærtækara væri að koma upp tækjakosti, húsaskosti og
starfsmönnum sem framkvæmt gætu þjónustuna á Akureyri. Tæknilega er allt
mögulegt. Meira að segja gæti landsbyggðin orðið enn öflugri með Akureyri sem
getumeiri þjónustukjarna. Þetta myndi meira að segja vera ákveðin lausn á
dóminerandi borgríkisstefnu undanfarinna 30-40 ára.
Þeir sem vilja sjá flugvöllinn úr Vatnsmýrinni verða að sjá
rök landsbyggðarinnar um neyðarsjúkraþjónustu sem alvöru rök, og tala fyrir
lausnum. Það er eina leiðin til að flugvöllurinn fari einhvern tímann úr
Vatnsmýrinni. Að benda á vegalengdir í Osló er eins og að kasta olíu á eld, í
Noregi eru nefnilega spítalar um allt land sem geta sinnt neyðarþjónustu, göng
í hverjum firði og þyrlur í hverjum landshluta. Þar eru stærðir og þjónustustig
öðruvísi um allt land.
1 ummæli:
Byggja hátæknisjúkrahús og Sjúkraflugbraut í t.d. hrauninu í Hfj, við úlfarsfell, grafarholt o.fl.
Mætti líka hafa sjúkraflugbrautir í vatnsmýrinni, þær taka mun minna pláss en þær sem fyrir eru.
Má líka hafa flugbrautir fyrir sjúkraflug á álftanesi, en þar liggur fyrir að klára eigi "hringveginn" með brú yfir skerjafjörðinn.
Fullt af fínum lausnum sem krefst ekki haturs á ungu fólki ;)
Megum ekki gleyma að það eru þó 13 ár til stefnu, nægur tími til lausna.
Kv,
Gunni
Skrifa ummæli