sunnudagur, 4. janúar 2009

Ríkisleyndarmál

Eftir tölvupóstsamskipti mín við Guðrúnu Jónsdóttur deildarstjóra hjá vísitöludeild hagstofunnar hef ég komist að því að það er trúnaðarmál á hvaða forsendum höfuðstóll íbúðalána minna er byggður. Ég óskaði semsagt eftir upplýsingum um málið og fékk sendar almennar upplýsingar um útreikninga neysluvísitölu til verðtrygginar. Ég spurði því:  "Skil ég þig þá rétt að þið teljið þagnarskyldu og trúnað ríkja um þá vörulista er grundvalla vísitölu neysluverðs til verðtryggingar?"

Svar Guðrúnar var:

"Sæll. Já það er rétt skilið. Við afhendum aldrei vörulista eða einstakar verðupplýsingar sem við söfnum. Það er mjög mikilvægt fyrir starf okkar að trúnaður ríki, annars yrði mjög erfitt fyrir okkur að fá verslanir og þjónustufyrirtæki til að láta okkur upplýsingarnar í té.
Með kveðju,
Guðrún"

Mér hafði leikið sérstök forvitni á því hvaða vöruverð grundvalla höfuðstól skulda minna. Samkvæmt svari Hagstofunnar er það algjört trúnaðarmál. Fyrir mér er um ákveðið prinsipp mál að ræða. Ég hef ákveðin rétt á að vita hvaða heimildir breyta höfuðstól skulda minna mánaðarlega. Hver er það sem fer yfir vörulistann fyrir mína hönd? Hver verndar hagsmuni mína þegar endanlega vísatala er ákveðin um hver mánaðarmót?

Hvort ætli verð á sófasetti eða golfsetti hafi meiri vigt í vísitölunni? Mig langar svo að vita þetta.

11 ummæli:

Unknown sagði...

Vá...þetta er algert siðleysi!
Hvern er "trúnaðurinn " að vernda?

Nafnlaus sagði...

Þetta getur varla staðist lög, mun líklegra er að þetta séu duttlungar þeirra Hagstofumanna.

Gaman væri að fá tilvísun í lög eða það sem betra væri, réttláta útskýringu á útreikningnum.

Nafnlaus sagði...

http://hagstofa.is/?PageID=711&src=/temp/Dialog/varval.asp?ma=VIS01306%26ti=V%EDsitala+neysluver%F0s%2C+undirv%EDsit%F6lur+fr%E1+2008%26path=../Database/visitolur/neysluverd/%26lang=3%26units=Vísitölur

Held að trúnaðurinn sé bara um frá hvaða framleiðanda/seljanda hveitkílóið er.
Neisti

Einar sagði...

Sem hlýtur að vera lykilatriði, og í hvaða verslun það er keypt...

Nafnlaus sagði...

Sendu erindið til Umb. Alþingis og Umb. Neytenda.

Nafnlaus sagði...

Væri ekki líka miklu eðlilegra að miða vísitöluna við raunverulega neyslu, en ekki verð á neysluvörum.

Nafnlaus sagði...

Það hljómar undarlega. Ef ég lána þér milljón í eitt ár vil ég fá borgað til baka upphæð sem dugar fyrir sama magni af neysluvörum og fyrir ári síðan + vexti. Það kemur mér sem lánara ekkert við hvort almenningur er farinn að kaupa minna af jógúrti og flatskjám.

Nafnlaus sagði...

Nákvæmlega. Þannig að þú sem lánari tekur enga áhættu. Frábært system fyrir þig.

G.

Nafnlaus sagði...

Ef þú ert til í að lána mér pening eftir einhverju öðru systemi máttu endilega gefa mér símanúmerið þitt, til er ég!

Hins vegar er ég ansi hræddur um að lánveitendur muni alltaf verðleggja þá áhættu sem þeir taka, þ.e.a.s. óverðtryggð lán koma þá einfaldlega með himinháum vöxtum. Verðtryggingin er leið til að halda útlánastarfsemi gangandi á mörkuðum sem eru jafn sveiflukenndur og sá íslenski. Þjóðir sem búa við stöðugt verðlag hafa ekki haft neina þörf fyrir að taka upp verðtryggingu, en Ísland býr því miður ekki við slík skilyrði, þökk sé ónýtri peningamálastefnu sett af ónýtum uppgjafa pólitíkusum.

Nafnlaus sagði...

Eitt er víst, verð á nýjum bílum er og hefur verið stór þáttur í þessum úreikningum. Hvaða vit er í því?

Unknown sagði...

Þarft þú að brýn lán? ertu í skuldir? þarftu brýn lán til að fjármagna fyrirtæki þitt?, hefur þú verið hafnað af bankanum þínum, áhyggjur ekki meira, Þjónusta okkar eru Quick, Easy & tryggja lán núna í einhverjum kringumstæðum. Að láni allt að 2.000 evrum - Euro 1,000.000 dag! Hafðu samband við upplýsingar lán á ESTA email: noramildred.loan@hotmail.com

Athugið: Þú verður að búast forkeppni svar og fjármögnun innan 24 klukkustunda

Kveðjur.
Mrs Nora

Króna/EURO